2.6.2006 | 19:59
22 dagar í Barcelona
Jæja, þá er hafin enn ein tilraun til bloggs! Sjáum bara til hvernig þetta mun ganga
Er búin að vinna í u.þ.b. viku núna, í kjötborðinu í Fjarðarkaupum. Vinn þar þangað til ég fer út, með skvísunum Það er svo frábært að vinna þarna, starfið sjálft er ekki leiðinlegt og svo er starfsfólkið alveg frábært! Aðallega þess vegna sem ég vinn þar...maður fær alveg sinn skerf af flippi, drama og hlátursköstum á dag!
Stefnir allt í frábært djamm næstu helgi, síðan kemur ein róleg, svo er 17.júní helgin, þá verður tebó og sumarbústaðarferð með vinnunni kannski! Helgin eftir það er síðan Barcelona!!
Sólsetrið í Barcelona...
Segjum þetta gott í bili...
Katrín kveður!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)